Bæjarmálafundur
Fyrsti bæjarmálafundur sjálfstæðisfélaganna í Fjarðabyggð á nýju ári verður haldinn í Eskjusalnum á Eskifirði þriðjudagskvöldið 18.1. kl: 20:00. Bæjarfulltrúar og nefndarmenn flokksins munu sitja fyrir svörum og taka þátt í umræðum.
Allir áhugasamir velkomnir.
Sjálfstæðisfélöginn í Fjarðabyggð
Jólakveðjur
Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð sendir íbúum Fjarðabyggðar bestu jólakveðjur og þakkar samstarf og ómetanlegan stuðning á árinu sem er að líða. Megi árið 2011 verða okkur öllum happadrjúgt.
Sjálfstæðismenn í Fjarðabyggð
Bæjarmálafundur með nýjum bæjarstjóra
Nýr bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Páll Björgvin Guðmundsson, mun kynna sig og sitja fyrir svörum á opnum bæjarmálafundi nk. miðvikudagskvöld 1. september. Hefst fundurinn kl 20:00 og fer fram í Eskjusalnum á Eskifirði.
Allir áhugasamir eru velkomnir
Sjálfstæðismenn í Fjarðabyggð
Tuttugu og þrír sækja um starf bæjarstjóra í Fjarðabyggð
Á fundi bæjarráðs í gær var lagður fram listi yfir umsækjendur um starf bæjarstjóra í Fjarðabyggð. 23 skiluðu inn umsókn en fimm drógu umsóknir sínar til baka.
Eru þeir eftirfarandi:
Andrés Sigurvinsson, verkefnisstjóri, Árborg
Ásgeir Magnússon, forstöðumaður, Akureyri
Ásta G. Hafberg Sigmundsdóttir, háskólanemi, Kópavogi
Björn Ingi Knútsson Höiriis, ráðgjafi, Fjarðabyggð
Daði Einarsson, ráðgjafi, Búlgaríu
Einar Már Sigurðarson, skólastjóri, Fjarðabyggð
Gestur Valgeir Gestsson, fararstjóri, Fjarðabyggð
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæjarstjóri, Hellu
Gunnar Jónsson, forstöðumaður, Fjarðabyggð
Jakob Ingi Jakobsson, lögfræðingur, Vogum
Jóna Árný Þórðardóttir, löggiltur endurskoðandi, Fjarðabyggð
Ólafur Áki Ragnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri, Djúpavogi
Óskar Baldursson, viðskipafræðingur, Garðabæ
Sigurður Pétur Hjaltason, lögfræðingur, Akureyri
Sigurður Blöndal Birgisson, lektor, Danmörku
Sigurður Sigurðsson, verkfræðingur, Garðabæ
Þorsteinn Frímann Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, Garðabæ
Þorvaldur Einarsson, yfirflokksstjóri, Fjarðabyggð
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í nefndum og ráðum
Á 2. fundi bæjarstjórnar þann 29/6 var kosið í nýjar nefndir og ráð á vegum sveitarfélagsins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð eru eftirfarandi:
Atvinnu- og menningarnefnd:
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir (formaður)
Þórður Vilberg Guðmundsson
Hafnarstjórn:
Sævar Guðjónsson (varaformaður)
Óskar Þór HallgrímssonFélagsmálanefnd:
Gunnar Ragnar Jónsson (varaformaður)
Árdís Aðalsteinsdóttir
Barnaverndarnefnd:
Steinar Gunnarsson (formaður)
Sigríður Herdís Pálsdóttir
Sigurður Ásgeirsson
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd:
Agnar Bóasson (formaður)
Gunnar Ásgeir Karlsson
Fræðslu- og frístundanefnd:
Jóhanna Hallgrímsdóttir (varaformaður)
Benedikt Jóhannsson
Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
Málefnasamningur vegna meirihlutasamstarfs Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur verið birtur. Má nálgast hann hér.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ganga til meirihlutasamstarf
Eftirfarandi er sameiginleg yfirlýsing bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar:
"Yfirlýsing um meirihlutasamstarf B-lista og D-listaB og D listi í Fjarðabyggð hafa náð saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar á kjörtímabilinu sem nú er að hefjast. Stjórnir og framboðslistar félaganna hafa samþykkt drög að málefnasamningi milli þessarar framboða. Mun gerð málefnasáttmála verða lokið á næstu dögum og hann birtur opinberlega á heimasíðu sveitarfélagsins þegar ný bæjarstjórn tekur við á fyrsta fundi sínum þann 15.júní næstkomandi ásamt því að hann verður kynntur í endanlegri mynd innan framboðanna. Jón Björn Hákonarson, oddviti B-lista, mun verða forseti bæjarstjórnar og Jens Garðar Helgason, oddviti D-lista, mun verða formaður bæjarráðs á kjörtímabilinu og mun verða fullt jafnræði með framboðunum með skiptingu verka í hinum nýja meirihluta. Þá hafa framboðin ákveðið að auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í Fjarðabyggð nú í júní."
Takk fyrir okkur!
Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð þakkar þeim fjölmörgu sem lögðu sitt af mörkum til að tryggja þau glæsilegu úrslit sem komu upp úr kjörkössunum í gærkvöldi. 41% fylgi er staðreynd og Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn stærsta stjórnmálaaflið í Fjarðabyggð.
Á sama tíma þökkum við frambjóðendum Fjarðalista og Framsóknarflokks fyrir heiðarlega kosningabaráttu og skemmtilegar vikur í aðdraganda kosninga.